Valin verkefni
Söluvefur fyrir byggingaverktaka
Sérsmíðað umsjónarkerfi fyrir byggingaverktaka.
- Vandamál
- Byggingarverktaki þarf söluvef fyrir byggingaverkefni. Hann þarf fallegan vef sem sýnir renderingar og væntanlega uppbyggingu, en hann þarf líka fulla stjórn yfir bakenda, sem gerir honum kleift að stilla verðin, fjölda bílastæða og fleira tengt hverri íbúð fyrir sig. Auk þess þarf hann jöfnum höndum að geta skráð hvaða íbúðir eru fráteknar og hverjar eru lausar.
- Lausn
- Fallegur sérsmíðaður vefur, sem leyfir notanda að hover'a yfir byggingunni til að sjá upplýsingar um hverja íbúð fyrir sig. Fullbúið stjórnendasvæði gerir svo byggingaverktaka kleift að uppfæra upplýsingar um íbúðir, en líka að sjá fleiri tölfræði tengda verkefninu..
Pöntunar- og dreifingakerfi
Sérsmíðað rekstrarkerfi fyrir matvæladreifingu til skóla og vinnustaða.
- Vandamál
- Fyrirtæki í matvælaiðnaði heldur utan um fjölbreytt samskipti við móttökueldhús, bæði fyrir pantanir og afhendingar, en líka fyrir fjöldaskráningu. Núverandi lausn er í stóru excel skjali, en þegar reksturinn stækkaði þá þurfti að hanna nýja framtíðarlausn.
- Lausn
- Sérsmíðað pantana- og umsjónarkerfi, sérsniðið að þörfum viðskiptavinar, sem heldur utan um pantanir og upplýsingar um móttökueldhús.
Söluvefur fyrir ferðaþjónustu
Ferðaþjónustuaðili tekur sín fyrstu skref að selja eigin upplifanir.
- Vandamál
- Ferðaþjónustuaðili, sem hefur boðið uppá frábærar ferðir í mörg ár, hefur enn ekki haft tíma í að setja upp eigin sölukanal. Öll sala hefur farið fram í gegnum þriðja aðila, þrátt fyrir mikla eftirspurn.
- Lausn
- Uppsetning á nýrri heimasíðu með samþættingu við Bókun.io. Við aðstoðum fyrirtækið að setja upp eigin prófíl á Bókun, með tenginu við greiðsluþjónustu. Þvínæst settum við upp nýja heimasíðu með tengingu við Bókun. Nú flæðir megnið af sölunni í gegnum þeirra eigin vef.
Stjórnendamælaborð
Rauntímayfirlit yfir rekstur fyrirtækis byggt á samþættingu við mörg kerfi.
- Vandamál
- Fyrirtæki í góðum rekstri er fast með bókhaldið í DK, sem veitir takmarkaða sýn á reksturinn. Viðmótið hjá DK er óaðgengilegt og fast á gamalli öld og öll þjónusta kostar handlegginn af.
- Lausn
- Sérsmíðað mælaborð sem sækir gögn úr bókhaldskerfi daglega. Nútímalegt viðmót gerir stjórnenda kleift að auðga gögnin á hátt sem hentar þeim best.
Bókhaldssamþætting
Sérsmíðuð samþætting fyrir ferðaþjónustu. Nú streyma bókanir beint í bókhald, án viðkomu mannshandarinnar.
- Vandamál
- Ferðaþjónusta, með eigin söluvef, færir bókanir handvirkt inn í bókhaldskerfi að sölu lokinni. Þetta ferli er útsett fyrir mistökum en auk þess eiga bókanir til að gleymast þegar mesta traffíkin dynur á.
- Lausn
- Sérsmíðuð samþætting bókunarkerfis og bókhalds. Samþættingin leyfir viðskiptavin að tengja bókunartýpur á réttan bókhaldslykil, svo að öll sala skili sér rétt inn í bókhaldið, ásamt öllum skattalegum upplýsingum.
Vefverslun
Vefverslun fyrir fyrirtæki sem selur vöruna alfarið á netinu. Fullbúin síða með tengingu við greiðsluþjónustu.
- Vandamál
- Fyrirtæki vill selja vörurnar sínar á netinu.
- Lausn
- Fullbúin heimasíða, smíðuð í WIX, með tengingu við greiðsluþjónustu. Eigendur fyrirtækisins nota WIX appið í símanum, en þannig eru þeir fljótir að bregðast við spurningum um vörur og get fylgst með sölunni hvar og hvenær sem er.