Um Praksis
Praksis er lítið tækniteymi sem byggir sérsmíðuð kerfi fyrir fyrirtæki. Við hjálpum til við að leysa raunveruleg rekstrarvandamál með hugbúnaði, samþættingum og gagnayfirlitum.
Lausnir þurfa að virka í praksis
Bein samskipti
Þú talar beint við þann sem hannar og smíðar lausnina. Engar upplýsingar þvælast á milli deilda og misskiljast. Það er einfaldara að ákvarða næsta skref. Þú ert ekki að borga fyrir yfirbyggingu.
Sérsmíði
Lausnir eru hannaðar út frá rekstrinum þínum. Við smíðum ekki Ferrari þegar Yaris hentar betur. Við greinum vandamálið og leggjum til lausn sem er mest virði fyrir þinn rekstur.
Hraði
Lítið teymi sem getur tekið ákvarðanir hratt. Við notum gervigreindartól alls staðar þar sem við getum sparað okkur tíma en sá tímasparnaður skilar sér beint til viðskiptavina okkar.
Tæknileg breidd
Löng reynsla af forritun, vefkerfum og samþættingum. Við höfum mikla þekkingu á sviði upplýsingatækni og rekstri. Þessi þekking nýtist okkur við lausnahönnun og tryggir að við veljum réttu kerfin fyrir lausnina þína.
Stofnendur

Harpa
Rekstrarráðgjöf og fjármál
Harpa hefur unnið fyrir stór alþjóðleg ráðgjafafyrirtæki og hefur mikla reynslu af rekstri og fjármálum stærri og smærri fyrirtækja

Kári
Tækniráðgjöf og forritun
Kári hefur unnið fyrir hugbúnaðarhús stór og smá, bæði erlendis og hérlendis og hefur víðtæka reynslu af tækniráðgjöf