PRAKSIS

Sérsmíðaðar lausnir hafa aldrei verið aðgengilegri.

Við hönnum og smíðum lausnir og samþættingar sem einfalda rekstur.

Hvaða vandamál getum við leyst?

  • Handvirkir ferlar

    Fyrirtæki eru oft með handvirka ferla sem eru útsettir fyrir innsláttarvillum og mannlegum mistökum.

  • Kerfi sem tala ekki saman

    Öll kerfi geta talað saman. Við tengjum saman kerfi með sérsmíðuðum samþættingum ef þess þarf.

  • Skortur á rekstrarsýn

    Við smíðum mælaborð og yfirlitskerfi sem gera stjórnendum kleift að sjá stöðuna í rauntíma.

  • Sérþarfir sem SaaS kerfi leysa ekki

    Þegar standard hugbúnaður passar ekki, smíðum við sérlausn. Með tilkomu gervigreindar er það ódýrara en þú heldur.

Fyrir hverja?

Við einföldum yfirbyggingu og ferla svo fyrirtækið geti einbeitt sér að kjarnarekstrinum.

  • Smá og meðalstór fyrirtæki
  • Fyrirtæki sem vilja fókus á kjarnarekstur en einfalda alla yfirbyggingu og ferla
  • Fyrirtæki sem vilja sjálfvirknivæða handvirka vinnu
  • Fyrirtæki sem þurfa sérlausnir

Valin verkefni

  • Söluvefur fyrir byggingaverktaka

    Sérsmíðað umsjónarkerfi fyrir byggingaverktaka.

    Lesa meira →

  • Pöntunar- og dreifingakerfi

    Sérsmíðað rekstrarkerfi fyrir matvæladreifingu til skóla og vinnustaða.

    Lesa meira →

  • Söluvefur fyrir ferðaþjónustu

    Ferðaþjónustuaðili tekur sín fyrstu skref að selja eigin upplifanir.

    Lesa meira →

  • Stjórnendamælaborð

    Rauntímayfirlit yfir rekstur fyrirtækis byggt á samþættingu við mörg kerfi.

    Lesa meira →

  • Bókhaldssamþætting

    Sérsmíðuð samþætting fyrir ferðaþjónustu. Nú streyma bókanir beint í bókhald, án viðkomu mannshandarinnar.

    Lesa meira →

  • Vefverslun

    Vefverslun fyrir fyrirtæki sem selur vöruna alfarið á netinu. Fullbúin síða með tengingu við greiðsluþjónustu.

    Lesa meira →

Ferlið

1. skref

Greining

Við kynnum okkur vandamálið

2. skref

Lausnarhönnun

Við leggjum drög að lausn sem hentar rekstrinum og umfanginu. Við gefum tímaáætlun fyrir fyrsta fasa verkefnisins og stillum af væntingar.

3. skref

Þróun

Við smíðum lausnina og kynnum hana þegar fyrsta útgáfa er tilbúin.

4. skref

Endurbætur

Við hjálpum viðskiptavinum að ítra lausnina, byggja hana áfram og viðhalda henni.

Lausnir þurfa að virka í praksis

  • Bein samskipti

    Þú talar beint við þann sem hannar og smíðar lausnina. Engar upplýsingar þvælast á milli deilda og misskiljast. Það er einfaldara að ákvarða næsta skref. Þú ert ekki að borga fyrir yfirbyggingu.

  • Sérsmíði

    Lausnir eru hannaðar út frá rekstrinum þínum. Við smíðum ekki Ferrari þegar Yaris hentar betur. Við greinum vandamálið og leggjum til lausn sem er mest virði fyrir þinn rekstur.

  • Hraði

    Lítið teymi sem getur tekið ákvarðanir hratt. Við notum gervigreindartól alls staðar þar sem við getum sparað okkur tíma en sá tímasparnaður skilar sér beint til viðskiptavina okkar.

  • Tæknileg breidd

    Löng reynsla af forritun, vefkerfum og samþættingum. Við höfum mikla þekkingu á sviði upplýsingatækni og rekstri. Þessi þekking nýtist okkur við lausnahönnun og tryggir að við veljum réttu kerfin fyrir lausnina þína.

Stofnendur

  • Harpa – Rekstrarráðgjöf og fjármál

    Harpa

    Rekstrarráðgjöf og fjármál

    Harpa hefur unnið fyrir stór alþjóðleg ráðgjafafyrirtæki og hefur mikla reynslu af rekstri og fjármálum stærri og smærri fyrirtækja

  • Kári – Tækniráðgjöf og forritun

    Kári

    Tækniráðgjöf og forritun

    Kári hefur unnið fyrir hugbúnaðarhús stór og smá, bæði erlendis og hérlendis og hefur víðtæka reynslu af tækniráðgjöf

Ertu með tæknivandamál?

Ef þú ert með hugmynd að kerfi, vandamál í rekstri eða ferli sem mætti sjálfvirknivæða, þá viljum við heyra frá þér